<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, desember 16, 2003

Ég bætti hér við tveim nýjum danalinkum.

Ég er nú alveg búin að komast að því núna hvað síðan mín er ótrúlega glötuð. Fyrst fannst mér hún bara svona skemmtilega hallærisleg og fannst það bara fyndið hvað hún var ljót. En núna er ég barasta orðin sorgmædd. Svo Luca er búin að lofa að hjálpa mér að hressa aðeins upp á hana. jeeeeeij
vúbsí vúbsí

Jiii það er nú ekki í lagi með mig. Ég er alltaf að gleyma að ég eigi þetta blogg. Fussumsvei skammastu þín Sólveig. Sorry elskurnar, ég lofa að taka mig á.....eftir jólafríið tíhí.

Jammsí, er semsagt að fara heim á klakann á morgun. Æi ég á eftir að pakka og þrífa og allt buhuhu. Svo er líka veik, svaka flensa, hiti og læti! VÁ hvað ég á bágt...hey þetta er ekki búið, svo byrja ég að vinna á fimmtudaginn! Æi þetta reddast eins og vanalega. Svo lengi sem bragðlaukarnir virka. Mmmmmm ég er alveg farin að hlakka til að bæta aðeins á mig í jólafríinu. Ég er líka viss um að mig skorti þónokkur bætiefni, þar sem fæðuúrvalið hefur verið afskaplega einfalt undanfarið.

Katla kom í heimsókn um daginn og stoppaði hér í tæpa viku á leið sinni til Austurríkis. Við skulum vona að við heyrum nú e-ð í henni á blogginu hennar. Við skemmtum okkur alveg frábærlega. En einhverra hluta vegna náðum við ekki að gera neitt nema djamma.....við þurftum víst að vinna upp síðustu mánuði, já og svo hittumst við audda ekki fyrr en í vor. Snökt snökt.

ókei ég er farin að gera e-ð af viti. Læt heyra í mér næst þegar ég man. En ef ég fer að verða dugleg að skrifa þá verðið þið að gera það líka. Alveg glatað að vera e-ð að blaðra hérna við sjálfan sig.
knúúúúúúúúúúús

This page is powered by Blogger. Isn't yours?