<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, maí 11, 2004

jii hvað er verið að rugla mann með því að breyta öllu bloggkerfinu? og commentdótið mitt dottið út! glatað!

Anyways. Sól og sumar í Køben! mmmm ég hlakka til að eiga heeeilt gott sumar, þar sem ég get alltaf verið í pilsi og litlum bol og farið á ströndina og setið í einhverjum park og drukkið bjór. Jei hvað það verður gaman. Það slær sko út þessum einstaka dögum á Austurvelli þegar maður hljóp niðrí bæ um leið og hitinn skreið yfir 15 gráður.

Búin að vera svaka næs helgi. Mamma, pabbi, Sara og Andrea í heimsókn. Það var stíft prógramm alla dagana. Fórum í Legoland á föstudeginum. Ótrúlega gaman að koma þangað aftur, fór sko síðast þegar ég var 7 ára og það hefur ekki mikið breyst. Á laugardeginum fórum við yfir til Svíþjóðar til að heimsækja gamlar slóðir í Malmö og Lund. Geðveikt skrítið að sjá gamla húsið mitt og alla staðina sem við Sara lékum okkur á. Ég var reyndar alltaf að bíða eftir að gamlar og gleymdar minningar myndu hellast yfir mig en það gerðist ekki neitt. Frekar spæló.
Sunnudeginum eyddum við í Tivoli í sól og steikjandi hita. Sara og Andrea urðu veikar eftir froskinn sem fór óvart 3 umferðir svo ég gat ekki dregið þær í rússibanann. Eyddum miklum tíma í skotbökkunum þar sem 10 ára systir mín rústaði öðrum fjölskyldumeðlimum í pílukasti og andarveiðum. Hún fór heim með 5 bangsa!

Glatað ég missi af brúðkaupi aldarinnar á föstudaginn. Danskir fjölmiðlar eru búnir að gleyma allri pólitík og restinni af veröldinni. Sólin snýst um Friðrik og Mary þessa dagana. Neee ég næ nú skrúðgöngunni. Á ekki að vinna fyrr en klukkan sex.

Samt mun verra að missa af Eurovision á laugardeginum. Ég sem var farin að hlakka svo til :o)

Ég er farin að elda sænskar kjötbollur núna handa Elínu og Söru, og byrja á bjórkassanum sem var dreginn heim í dag, eins og gerist gjarnan þegar sólin skín of mikið...

mánudagur, maí 03, 2004

úff púff erfið helgi...en ótrúlega skemmtileg.
Þórunn kom síðasta fimmtudag. Við fórum bara heim og fengum okkur pizzu, drukkum rauðvín og vorum bara að spila og spjalla fram á rauða nótt, enda var mikið kettsjíng öpp tú dú. Á föstudeginum fórum við á Strikið, versla versla versla. Kíktum svo á djammið með Elínu og fleirum um kvöldið. Vöknuðum svaka hressar á laugardeginum. Það var 1.maí svo voða lítið opið. Náðum reyndar klukkutíma í Fields. Dí stórt moll. Það eru sko miklu flottari föt í H&M í Fields heldur en niðrí bæ...bara svo þið vitið af því, tíhí. Rólegt laugardagskvöld heim í hvítvíninu. Brjálæðislega gott veður á sunnudeginum!! Glampandi sól og ótrúlega heitt. Við fórum í einn af görðum Köben og sleiktum sólina. Eyddum svo restinni af deginum í Tivoli. Vííí förum í öll tækin sem við máttum fara í. Þórunn vildi reyndar ekki fara með mér í hringekjuna. Fnuss, mig langaði svo á gíraffann. Vá hafiði farið í fallturninn? Þvílíkt andlegt sjálfsmorð. Enduðum á djamminu og svo heima...aftur í rauðvíninu. Skriðum í bælið um átta leytið í morgun. Ég var dregin á hárinu fram úr rúminu klukkan 12 því Þórunn var sko ekki búin að versla nóg. Fórum aftur í Fields því það var rigning úti.

Núna er Þórunn að fara heim, sniff sniff. 30 kílóum þyngri!!

Ég hef 2 daga til að læra, svo kemur familían. Jeij aftur í Tivoli.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?